Endurskoðun sem byggir á traustum grunni og faglegum vinnubrögðum.
Þjónusta okkar er á sviði endurskoðunar, reikningsskila, bókhalds og viðskiptaþjónustu ásamt fyrirtækja- og skattaráðgjöf.
Um okkur
Starfsemi frá byrjun árs 2013. Baker Tilly frá 2019.
Baker Tilly á Íslandi er endurskoðunarfyrirtæki sem byggir á traustum grunni og faglegum vinnubrögðum.
Þrátt fyrir að vera ungt félag þá hafa eigendur og starfsmenn Baker Tilly mikla reynslu af endurskoðun, reikningsskilum, ráðgjöf o.fl. Aðilar fyrirtækisins hafa unnið fyrir smáa sem stóra aðila, skráð félög, aðila undir eftirliti FME, SOX, dótturfélög skráðra félaga, félög með starfsemi erlendis o.fl.
Starfssvið
Fjölbreytt þjónusta fyrir fyrirtæki af öllum stærðargráðum.
- 01 Endurskoðun Endurskoðun og könnun reikningsskila, önnur staðfestingarvinna, úttekt og vottun innra eftirlits og innri endurskoðun.
- 02 Reikningsskilaþjónusta Gerð ársreikninga og árshlutareikninga, aðstoð við innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS) og önnur reikningsskilaráðgjöf.
- 03 Skattaráðgjöf Aðstoð við skattskil og skattaútreikninga, úrlausn skattalegra álitaefna og almenn ráðgjöf og þjónusta tengd skattamálum.
- 04 Viðskiptaþjónusta Aðstoð við stofnun fyrirtækja, afstemmingar, færsla bókhalds, launavinnsla og virðisaukaskattsuppgjör.
- 05 Fyrirtækjaráðgjöf Framkvæmd áreiðanleikakannana, fjárhags- og sjóðsstreymisáætlanir, verðmöt, aðstoð við kaup, sölu og sameiningar fyrirtækja og endurskoðunarnefndir.
Alþjóðlegt samstarf
Baker Tilly International
Við erum aðildarfélag að Baker Tilly, sem nær yfir 147 löndum með 33.600 starfsmenn í yfir 960 skrifstofum.
Baker Tilly International er alþjóðlegt net sjálfstæðra fyrirtækja á sviði endurskoðunar og ráðgjafar en markmið félagsins er að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu. Með aðild að Baker Tilly höfum við fullan aðgang að sérfræðingum um allan heim.
Ræðum þín mál
Síðumúli 23 · 108 Reykjavík · S: +354 510 2000